|
Yfirlýsing
Páll
Pétursson, félagsmálaráðherra/ráðherra
jafnréttismála
Sólveig
Pétursdóttir, dóms- og kirkjumálaráðherra
Íslenska
ríkisstjórnin gerir sér grein fyrir því
að mansals, verslunar með konur, hefur orðið vart í
landinu og fagnar þess vegna herferð Norðurlandanna og Eystrarsaltslandanna
gegn mansali með konur. Mjög mikilvægt er að berjast
gegn þessum glæp með áhrifaríkri upplýsingaherferð
sem miðar að því að upplýsa og auka þekkingu
og vitund almennings.
Ísland
hefur verið notað sem viðkomuland í flutningi kvenna
frá Evrópu til Bandaríkjanna og fjöldi erlendra
kvenna kemur ár hvert til Íslands til þess að vinna
sem nektardansmeyjar á næturklúbbum. Viðvörunarbjöllur
hringdu þegar niðurstöður rannsóknar, sem gerð
var að frumkvæði dómsmálaráðherra,
leiddu í ljós tengsl milli nektardansstaða í Reykjavík
og vændis. Athygli var beint að því að sumar
hinna erlendu kvenna sem vinna sem nektardansmeyjar geti verið neyddar
til að stunda vændi. Upplýsingar sem þessar eru
mikilvægar fyrir baráttuna gegn verslun með konur á
Íslandi. Leita verður allra leiða til þess að
berjast gegn þessri þróun og upplýsingaherferð
sem beint er að almenningi er mikilvæg í því
sambandi.
Ísland
hefur undirritað samning Sameinuðu þjóðanna um
að koma í veg fyrir, stöðva og refsa fyrir mansal með
konur og börn og vonast er til þess að fljótlega
verði samþykkt lög þar um. |
|
Statement
Páll Pétursson,
Minister of Social Affairs/Gender Equality
Sólveig Pétursdóttir,
Minister of Justice and Ecclesticical Affairs
The Icelandic Government
is aware that the problem of trafficking in women has surfaced in our country
and therefore appreciates the Nordic-Baltic Campaign Against Trafficking
in Women. It is of great importance to fight this crime with an effective
information campaign aimed at informing and increasing knowledge and awareness
among the public.
Iceland has experienced
being a transit country for trafficking in women from Europe to the United
States and a number of foreign women come each year to Iceland to work
as strip dancers in clubs. When a research, initiated by the Minister of
Justice, confirmed a link between strip clubs operated in Reykjavik and
prostitution, warning signs were lit. It was recognized that some of the
foreign women working as strip dancers might be forced into prostitution.
This information is important for the future work in the fight against
trafficking in women in Iceland. Every means must be used to combat this
trend and information campaign aimed at the general public is of vital
importance.
Iceland has signed the UN
Protocol to prevent, suppress and punish trafficking in women and children
and is hoping soon to introduce national legislation against trafficking
in human beings.
|
|
Herferðin
Undirbúningur
herferðarinnar er að hefjast en tilgangur hennar er að upplýsa
almenning, sérstaklega kaupendur og hugsanlega kaupendur kynlífsþjónustu,
um mansal með konur. Markmiðið er einnig að upplýsa
þær konur sem sækja um atvinnuleyfi á Íslandi
sem dansarar á næturklúbbum um lagaleg réttindi
sín. Samningur Sameinuðu þjóðanna um að
koma í veg fyrir, stöðva og refsa fyrir mansal með
konur og börn hefur verið undirritaður á Ísland
og vonast er til að fljótlega verði samþykkt lög
í samræmi við hann. |
|
Campaign
The planning for the campaign
has just started. The aim of the campaign is to introduce the issue of
trafficking in women to the public, especially buyers and potential buyers
of sexual services. The aim is also to inform the women who apply to come
to Iceland on work permits as “dancers” of their legal rights. Iceland
has signed the UN Trafficking Protocol and is hoping to introduce national
legislation on trafficking in human beings. |